Hátíðir í Önundarfirði
Í Önundarfirði eru fjölda árlegra hátíða sem hafa fylgt heimamönnum mis lengi. Elsta hátíðin fer að fagna aldar afmæli á meðan aðrar eru að slíta barnsskónum, en allar eiga þær það sameiginlegt að ætla að skemmta og gleðja og það eru ávallt allir velkonir.
Fyrir utan árlega viðburði hefur tónleikahald á Flateyri alla tíð verið mjög öflugt og best að að fylgjast með því á samfélagsmiðlum, til að fá nýjustu fréttir af þeim málum. t.d á facebooksíðu Vagnsins og hér fyrir neðan undir liðnum “Á döfinni”.
Stútungur

Stútungur er eitt elsta og skemmtilegasta þorrablót landsins sem hefur verið haldið í tæp hundrað ár. Mikil áhersla er lögð á vönduð og fyndin skemmtiatrið þar sem bæjarbúar og aðrir sem hafa komið við sögu á árinu fá það óþvegið. Boðið er upp á þorramat í bland við annan nútímamat.
Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn á Flateyri er haldin hátíðlegur með öllu því helsta sem góður sjómannadagur hefur upp á að bjóða, skemmtisiglingar, bryggjufjör, messa, köku- og pylsuát að ógleymdum sjómannadansleik.
Faceboosíða Björgunarsveitarinnar
Götuveislan á Flateyri

Götuveistlan á Flateyri er bæjarhátíð Flateyringa þar sem þeir koma saman, grilla, gleðsjast, syngja og skemmta sér eins og þeim einum er lagið.
Facebooksíða Götuveislunnar
Sandkastalakeppnin í Holti

Sandkastalakeppnin á Holtsfjöru er elsta og fjölmennasta árlega sandkastalakeppni Íslands, enda aðstaðan í fjörunni í Holti frábær á allan hátt. Þarna koma fjölskylsur, vinir og vinnuhópar saman til að eiga góðan dag í sjó og á landi.
Sandsball

Sandsball er einstök skemmtun á Ingjaldssandi þar sem dansað er fram á sólarupprás fyrir utan og innan eins minnsta samkomuhúss Íslands.
Facebooksíða Átthafafélagsnins Vorblóms
Íslandsmótið í Kubb

Íslandsmótið í Kubb fer fram á Flateyri á Verslunarmannahelginni og hefur þátttakendum fjölgað ár frá ári, enda til mikils að vinna, fyrir utan sjálfan íslandsmeistaratitilinn.
Gamanmyndahátíð Flateyrar

Gamanmyndahátíð Flateyrar er fyndnasta kvikmyndahátíð Íslands. Samhliða því að bjóða upp á úrval nýrra og eldri gamanmynda er boðið upp á matarveislur, leiksýningar, uppistand, tónleika og margt fleira.
Heimasíða Gamanmyndahátíðar Flateyrar
Sæunnarsund

Kýrin Sæunn komast á sundi frá slátrara sínum þegar hún slapp frá honum á Flateyri og synti alla leið yfir fjörðinn í Valþjófsdal. Á hverju ári reynda vaskir sundkappar að feta í klaufspor Sæunnar og synda yfir Önundarfjörð.
Facebooksíða Sæunarsundsins
Allar uppl´ýsingar hér á síðunni eru birtar með fyrirvara um breyttar dagsetningar og annað sem kann að breytast.
Vefumsjón: jovinsson@gmail.com – s: 8400600